Fréttir
Byggðarráð Norðurþings
127. fundur byggðarráðs Norðurþings haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 22. júlí 2010 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Friðrik Sigurðsson, Bergur Elías Ágústsson,
Fundargerð ritaði: Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri
Dagskrá:
|
201007046 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Hjálmari B. Hafliðasyni |
||
|
Byggðarráð staðfestir hér með samþykki sveitarfélagsins Norðurþings fyrir brennu sunnan við gömlu rækjuverksmiðjuna á Húsavík. En slík brenna hefur verið ár hvert í tilefni Mærudaga. Umsjónaraðili brennunnar er Húsavíkurstofa og ábyrgðamaður er Hjálmar Bogi Hafliðason verkefnisstjóri Mærudaga 2010. Brennan verður föstudaginn 23 júlí kl. 22:00. |
||
|
|
||
|
2. |
201007045 - Framsýn, ályktun um tillögur AGS |
|
|
Byggðarráð Norðurþings tekur heilshugar undir ályktun Framsýnar og varar við því að auka en frekar á skattbyrði fólks. Ástæðan er einföld, nú er nóg komið. |
||
|
|
||
|
3. |
201007043 - Samband ísl. sveitarfélaga, námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6. september |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
4. |
201007042 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Evelyn Foelsche |
|
|
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama. |
||
|
|
||
|
5. |
201007039 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Garðarsbraut 81, íbúð 203 |
|
|
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi söluheimild. |
||
|
|
||
|
6. |
201007040 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Grundargarði 6, nr. 101 |
|
|
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi söluheimild. |
||
|
|
||
|
7. |
201007038 - LSH, bréf varðandi skipun í stjórn félagsins |
|
|
Byggðarráð samþykkir að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurbæjar verði skipuð eftirfarandi aðilum. Jón Helgi Björnsson, sveitarstjórnarfulltúi. Ása Gísladóttir fyrir hönd starfsmannafélags Húsavíkurbæjar og Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri. |
||
|
|
||
|
8. |
201007037 - Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, ósk um styrk til stofnunarinnar |
|
|
Byggðarráð lýsir yfir ánægju með hugmynd að uppbyggingu stofnunar um tungumála og menningarrannsóknir. Hugmyndin snýst um að reisa 3.000.- fermetra byggingu og er áætlaður kostnaður um 1.300.- milljónir króna. Sveitarstjórn Norðurþings hefur á undanförnum árum lagt metnað sinn í að verja grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins á erfiðum tímum sem munu að öllum líkindum vara áfram næstu misseri. Í ljósi þess að sveitarfélagið þarf að forgangsraða munu þarfir mennta- og félagsmála innan sveitarfélagins hafa forgang. Sveitarfélagið Norðurþing hafnar því beiðni um að veita fjárstyrk í verkefnið að svo stöddu. |
||
|
|
||
|
9. |
201007004 - Stjórn sambands ísl. sveitarfélaga, 775. fundur |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
10. |
201006095 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, varðandi úthlutun aukaframlags 2010 |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
11. |
201007023 - Samband íslenskra sveitarfélaga-Boðun XXIV. landsþings |
|
|
Byggðarráð skipar eftirfarandi fulltrúa á Landsþing Sambands íslenska sveitarfélaga sem haldið verður á Akureyri 29 september nk. Tilnefndir eru; Jón Helgi Björnsson og Þráinn Gunnarsson til vara. Gunnlaugur Stefánsson og Trausti Aðalsteinsson til vara. Að auki situr Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri þingið með málfrelsi og tillögurétt. |
||
|
|
||
|
12. |
201006083 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Hrísateigur 2. |
|
|
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama. |
||
|
|
||
|
13. |
201001071 - Útgarður 4 |
|
|
Byggðarráð staðfestir fyrir hönd sveitarfélagsins Norðurþings, hlutdeildarábyrgð sína á yfirdrætti DA sf. hjá Landsbanka Íslands. Upphæðin nemur að hámarki 22,8 milljónir króna. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30
Til baka




