Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Skipulags- byggingarnefnd Norðurþings

Fundargerðir Skipulags- og Bygginganefndar - þriðjudagur 6.júl.10 09:53 - Lestrar 888
 

65. fundur

skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

þriðjudaginn 6. júlí 2010 og hófst hann kl. 13:00

 

Fundinn sátu:

Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson,

 

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, kipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

 

1.

200801042 - Aðalskipulag Norðurþings

Þann 1. júlí s.l. rann út frestur til athugasemda við tillögu að aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030.  Athugasemdir og ábendingar bárust frá eftirtöldum aðilum:

 

1.  Þeistareykir ehf:

1.1.  Þess er óskað að efnistökusvæði merkt RHN-6 í Sæluhúsamúla í greinargerð frummatskýrslna verði skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi Norðurþings.  Flatarmál fyrirhugaðs efnistökusvæðis er 12.000 m² og áætlað að þar megi taka allt að 60.000 m³ af efni.

1.2.   Heitið Kaldbakur sem notað er á efnistökusvæði ofan Grásteinsheiðar (E33, RHN-1) er ekki viðeigandi.  Óskað er eftir að efnistaka verði þar heimiluð upp á allt að 40.000 m³ á allt að 20.000 m² svæði.

1.3.  Efnistökusvæði sem ranglega er sagt við Árnahvamm er skammt suður af Höskuldsvatni (E36, RHN-5).  Þar er óskað eftir að fá að nýta allt að 200.000 m² af efni á 160.000 m² svæði.

 

2.  Athugasemdir frá Arnhildi Pálmadóttur og Helenu Eydísi Ingólfsdóttur:

2.1:  Forrsendur aðalskipulagsins.

2.2.  Iðnaðarlóð á Bakka.

2.3.  Hafnarsvæði.

2.4.  Svæði fyrir léttan iðnað í Suðurfjöru.

2.5.  Miðsvæði.

 

3.  Landvernd

3.1.  Landvernd telur að bygging álvers á Bakka samrýmist ekki meginmarkmiðum aðalskipulagsins um sjálfbæra þróun.

3.2.  Landvernd hefur efasemdir um að réttlætanlegt sé að skynsamlegt sé að nýta alla orku háhitasvæða í Þingeyjarsýslum og etv. fleiri virkjanakosta til álvers við Bakka.

3.3.  Landvernd gerir athugasemdir við að í aðalskipulagstillögunni sé gert ráð fyrir háhitavirkjunum á Þeistareykjum, í Kröflu, Námafjalli og Fremri Námum og línulögnum þeim tengdum.

3.4.  Landvernd bendir á mikilvægi þess að skaða ekki jákvæða ýmind svæðisins sem vinsæls viðkomustaðar ferðamanna.

 

4.  Helgi Hafliðason arkitekt

4.1.  Helgi telur rökrétt að dreifa umferð miðbæjar um Héðinsbraut/Garðarsbraut og Ketilsbraut til að gefa Garðarsbraut meira vægi fyrir gangandi umferð.  Því væri rökrétt stefna að tengja Ketilsbraut við Mararbraut sunnan "Bjarnahúss".

4.2.  Helgi bendir á mikilvægi gömlu Kaupfélagshúsanna í miðbænum og mikilvægi þess að skapa í þeim aðlaðandi starfsemi þar sem fólk kæmi saman til að sinna margvíslegum erindum.

4.3.  Helgi telur að sleppa mætti tengingu Ketilsbrautar við Garðarsbraut um Vallholtsveg.  Það hljóti að vera mikilvægt að þetta verðmæta miðbæjarsvæði verði nýtt til bygginga í stað þess að bera af honum eingöngu kostnað.

 

5.  Indriði Úlfsson, Héðinshöfða I

5.1.  Því er mótmælt að gert sé ráð fyrir uppbyggingu stóriðju á Bakka (k. 5.1 ofl.).

5.2.  Því er mótmælt að að það geti staðist að mengunarsvæði frá álveri sé alfarið innan Norðurþings (k.7.1).

5.3.  Því er harðlega mótmælt að að það geti talist lágmörkun losun gróðurhúsalofttegunda að leyfa uppbyggingu stóriðju innan bæjarlandsins (k. 19.2).

5.4.  Bent er á að Reyðará er að hálfu í eigu eigenda Héðinshöfða og ferskvatnsauðlind árinnar ekki til ráðstöfunar fyrir Norðurþing (k.20.1).

5.5.  Því er harðlega mótmælt að gert sé ráð fyrir iðnaðarsvæði með tilheyrandi sjónmengun, loftmengun, rykmengun, umhverfismengun og verðfalli eigna í nokkur hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum að Héðinshöfða án samráðs við eigendur húsanna (k.24.3).

5.6.  Verulegri stækkun iðnaðarsvæðis á Bakka er mótmælt þar sem stækkuninni fylgi sjónmengun, loftmengun, rykmengun, umhverfismengun og verðfall eigna á Héðinshöfða (k.24).

5.7.  Því er mótmælt harðlega að gert sé ráð fyrir tvöfaldri háspennulínu við sveitarfélagamörk með tilheyrandi  sjónmengun og rafbylgjumengun fyrir Héðinshöfða auk þess sem eignir á jörðinni munu verðfalla.  Gerð er sú krafa að línur verði lagðar í jörð frá álveri austur fyrir Húsavíkurfjall.

5.8.  Gert er ráð fyrir að raflínulögnum megi hliðra til um allt að 300 m frá þeirri legu sem sýnd er á uppdrætti (k. 24.3).  Því er mótmælt og bent á að verði línulögn að Bakka hliðrað til um 300 m  til norður verði hún orðin óásættanlega nærri Héðinshöfðajörðum og sveitarfélagamörkum.

5.9.  Því er harðlega mótmælt að samfélagsleg áhrif stóriðju á Bakka geti talist jákvæð.  Indriði telur að fyrirhuguð stóriðja muni útiloka byggð á Héðinshöfða og verðfella jörðina og því sniðgangi tillaga að aðalskipulagi algerlega hagsmuni nágranna í Tjörneshreppi.

5.10.  Indriði telur að óheimilt sé að samþykkja aðalskipulagið þar sem ekki liggi fyrir upplýsingar um möguleg óþægindi vegna hávaða, lyktar, birtu eða ryks.  Því sé ekki hægt að segja til um áhrif álversins á lýðheilsu.

 

6.  Byggðaráð Norðurþings

6.1.  Óskað er eftir breytingu á orðalagi kafla 2.08 um Skuld.

6.2.  Felld verði út setning um varðveislugildi skúra smábátasjómanna á Hafnarstétt 5 (k. 3.04).

6.3.  Felld verði út setning um staðsetningu Garðarshólms á efri hæð verbúðarhúsnæðis (k.3.08).

 

7.  Oddný E. Magnúsdóttir

7.1.  Oddný telur að tafarlaust verði að grípa til úrræða til að stemma stigu við útbreiðslu lúpínu í Húsavíkurlandi enda sé náttúrleg fjölbreytni gróðurs (sbr. verndun líffræðilegrar fjölbreytni) og fuglalífs í hættu að hennar mati.

 

8.  Alcoa

8.1.  Óskað er eftir að norðurmörk iðnaðarsvæðis á Bakka verði færð til samræmis við nýlega staðfesta breytingu á aðalskipulagi Húsavíkurbæjar þannig að norðurmörk iðnaðarsvæðis fylgi sveitarfélagamörkum.

8.2.  Alcoa óskar eftir að suðurmörk iðnaðarsvæðis verði færð 100 m til suðurs og svæðið stækkað sem því nemur.  Rökstuðningur liggur í því að samkvæmt nýjustu útreikningum á dreifingu útblásturs virðast líkur til þess að flúormengun geti orðið yfir viðmiðunarmörkum sunnan við núverandi mörk iðnaðarsvæðis.  Samsvarandi breytingar yrði að gera á texta umhverfisskýrslu (bls. 33) og uppfæra stærð svæðis í kafla 24.3.10 bls. 18 um skipulags þéttbýlis svo og aðrar teikningar af iðnaðarsvæðinu sem kunna að vera í tillögunni.

8.3.  Lagt til að í kafla 7.1 um meginforsendur verði orðalagi breytt til þess að vera "reist verði allt að 346.000 tonna álver..."

8.4.  Lagt til að í kafla 7.1. verði orðalagi breytt til að vera "Gert verði ráð fyrir súrálssílóum og löndunarbúnaði við Húsavíkurhöfn".

8.5.  Lagt til að rangt orðalag í kafla 6.12 bls 32 verði leiðrétt til að vera "Gert er ráð fyrir að iðnaðarlóð á Bakka, háspennulínum frá Kröflu/Þeistareykjum...".

8.6.  Bent er á nýjar upplýsingar í frummatsskýrslu vegna álvers vegna orðalags kafla 6 í umhverfisskýrslu bls. 31-34.

 

9.  Landsnet

9.1.  Vakin er athygli á að ljósleiðari Landsnets er ekki sýndur á uppdrætti.

9.2.  Uppfæra þarf kafla 23.22.1 og 24.3.16 miðað við breytta stöðu á frummatsskýrslu vegna línulagna.

9.3.  Lagfæra þyrfti orðalag um Kópaskerslínu og línu að Lindarbrekku.

9.4.  Vakin er athygli á því að aðveitustöðin í Skógargerðismel er í sameign Orkuveitu Húsavíkur og Landsnets.

 

10.  Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra

10.1.  Vakin er athygli á að öll umferð, umgengni og ástand tækja- og vélbúnaðar á vatnsverndarsvæðum vatnsbóla verði eins og best verði á kosið.  Notkun hættulegra efna og birgðageymsla slíkra efna er bönnuð.  Jafnframt er vakin á því athygli að HNE veitir starfsleyfi fyrir framkvæmdum á vatnsverndarsvæðum innan Norðurþings.

10.2.  Nauðsynlegt er að sveitarstjórn og heilbrigðiseftirlit setji sér langtímamarkmið um ástand strandsvæðis í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns.  Ekki liggur fyrir flokkun sjávar í Skjálfanda sem viðtaka fyrir skólp.

10.3.  Nauðsynlegt er að fullvinna svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs. 

 

11.  Landssamband hestamanna

11.1.  Ekki kemur fram hvernig reiðleiðir austan og vestan Jökulsár tengjast.

11.2.  Ekki er sýnd reiðleið með Jökulsá á á Fjöllum eins og fram kemur á skýringaruppdrætti með verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.

11.3  Tilgreindar eru aðrar þekktar reiðleiðir sem ekki er getið í tillögunni.

 

12.  Siglingastofnun

12.1.  Gera þarf grein fyrir sjóvarnargörðum í aðalskipulaginu.

12.2.  Bent er á að hafnarsvæði Húsavíkurhafnar H2 og H3 er aðskilið. 

 

13.  Bogi Ingimundarson

13.1.  Bogi mótmælir því að reiðvegur sé sýndur um Brekkulands án samráðs við landeigendur.

 

14.  GB5 ehf

14.1.  Um er að ræða ýmsar athugasemdir varðandi stækkunarmöguleika við Garðarsbraut 5.

 

15.  Míla

15.1.  Óskað er eftir því að fyrirhuguð ljósleiðarlögn við þjóðveg nr. 1 á Hólsfjöllum verði færð inn á aðalskipulag.

 

16.  Skipulagsstofnun

16.1.  Ýmsar athugasemdir.

 

Stefnt er að afgreiðslum á þessum athugasemdum á fundi nefndarinnar í ágúst.

 

 

 

 

2.

200709268 - Deiliskipulag hesthúsahverfis

Þann 1. júlí s.l. rann út frestur til athugasemda við tillögu að deiliskipulagi hesthúsasvæðis við Saltvík.  Engar athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna og engin af athugasemdum við aðalskipulagstillögu sneri að hesthúsasvæðinu.

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan öðlist óbreytt gildi sem deiliskipulag þegar nýtt aðalskipulag hefur verið staðfest.

 

3.

201006067 - Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands, ósk um umsögn v/Kröflulínu 3

Óskað er umsagnar um breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis vegna legu Kröflulínu 3 í Skútustaðahreppi og Fljótsdalshéraði.  Meðfylgjandi erindi er tillaga að breytingaruppdrætti svæðisskipulagsins.

 

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings gerir ekki athugasemdir við umrædda breytingu á svæðisskipulagi miðhálendisins.

 

4.

201006045 - Míla ehf. óskar eftir leyfi til að leggja ljósleiðarastreng

Óskað er eftir leyfi til að leggja ljósleiðarastreng meðfram þjóðvegi nr. 1 um Norðurþing frá sveitarfélagamörkum við brú yfir Jökulsá á Fjöllum að sveitarfélagamörkum við Biskupsöxl.  Ennfremur hefur þess verið óskað að strengurinn verði færður inn á aðalskipulagsuppdrátt sbr. 1. lið fundargerðarinnar.

 

Skipulags- og byggingarnefnd telur að framkvæmd verksins innan Norðurþings hafi lítil sem engin áhrif á umhverfi og leggur því til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt enda sýni umsækjandi fram á leyfi landeiganda til framkvæmdarinnar.

 

 

 

 

5.

200908026 - Gráni ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir reiðhús í Saltvíkurlandi

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir reiðskemmu á deiliskipulögðu hesthúsasvæði við Saltvík.  Um er að ræða 1.083,8 m² hús teiknað af Haraldi Árnasyni. 

 

Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar frestar afgreiðslu erindisins.

Hilmar Dúi sat hjá við þessa afgreiðslu.

 

 

6.

201006050 - Jónína Á Hallgrímsdóttir óskar eftir leyfi til að gera garðútgang af n.h. Laugarbrekku 5

Óskað er eftir leyfi til að útbúa garðútgang á suðurhlið neðri hæðar íbúðarhússins að Laugarbrekku 5.  Meðfylgjandi erindi er ljósmynd með rissi af fyrirhuguðum útgangi og árituðu samþykki meðeiganda í húsinu.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

7.

201006071 - Gautur Þorsteinsson f.h. Og fjarskipta ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjarskiptastöð á Smjörhólsfelli

Óskað er eftir leyfi til að reisa 9 m² tækjaskýli og 15 m hátt stálgrindarmastur á lóð fyrirtækisins á Smjörhólsfelli.  Meðfylgjandi erindi eru teikningar af mannvirkjunum ásamt ljósmynd af samskonar fjarskiptastöð.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

8.

201006075 - Stefán Gunnarsson og Sigurbjörg Jónsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús að Akurseli

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 54,0 m² starfsmannahúsi að Akurseli í Öxarfirði.  Húsið er teiknað af Eyjólfi Valgarðssyni tæknifræðingi.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

9.

201006065 - Almar Eggertsson f.h. Önnu Jónínu Valgeirsdóttur sækir um leyfi til að einangra og múrklæða utan húsið að Sólbrekku 14

Óskað er eftir leyfi til að einangra með 75 mm steinull og klæða með lituðu múrkerfi íbúðarhúsið að Sólbrekku 14 á Húsavík. 

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

10.

201006058 - Norðursigling, ósk um leyfi til að setja niður 3 fánastangir til móts við miðasölu fyrirtækisins

Óskað er eftir leyfi til að reisa þrjár fánastangir við Garðarsbraut gegnt miðasölu fyrirtækisins.

 

Skipulags- og byggingarnefnd telur umræddar fánastangir ekki í samræmi við nýgerða samþykkt um skilti í Norðurþingi og hafnar því erindinu.

 

11.

201006005 - Ósk Þorkelsdóttir f.h. Flóka ehf. sækir um leyfi fyrir breyttri starfsemi í hluta hússins að Hafnarstétt 21

Óskað er eftir leyfi til að innrétta hluta Hafnarstéttar 21 undir aðstöðu til að selja skyndibita "Fish"n chips" yfir sumartímann.  Aðgerðin felst í gerð lúgu á framhlið húss og stúka af aðstöðu innanhúss skv. framlagðri rissmynd.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið, enda verði kröfum eldvarnareftirlits, vinnueftirlits og heilbrigðiseftirlits fullnægt við frágang.

 

12.

201006076 - Jóna Matthíasdóttir f.h. Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf. sækir um leyfi fyrir skilti á Bökugarði

Óskað er eftir leyfi fyrir upplýsingaskilti á Bökugarði.  Um er að ræða 0,80x1,50 m² skilti í stálramma og fest á undirstöðu úr grjóti.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir leyfi fyrir skiltinu fyrir sitt leiti, en nánari staðsetning skiltis verði valin í samráði við hafnarvörð.

 

13.

200909058 - Norðursigling ehf-Bryggjuaðstaða í Húsavíkurhöfn

Norðursigling óskar eftir fundi með skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings til að ræða þörf fyrirtækisins fyrir húsnæði og aðstöðu á hafnarsvæði.

 

Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindis.

 

14.

201006083 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Hrísateigur 2.

Óskað er umsagnar vegna sölu gistingar að Hrísateigi 2 í Reykjahverfi.

 

Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu þau rými hússins leigð til gistingar sem til þess eru ætluð skv. teikningum af húsinu.

 

15.

201006043 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Elvari Daða Guðjónssyni, Grímstungu, Mývatnssveit

Óskað er eftir umsögn vegna viðbótar við rekstrarleyfi  til sölu gistingar að Grímsstöðum 1 á Fjöllum.

 

Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu þau rými hússins leigð til gistingar sem til þess eru ætluð skv. teikningum af húsinu.

 

16.

201006022 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitinga til handa Ósk Þorkelsdóttur f.h. Flóka ehf.

Óskað er umsagnar vegna fyrirhugaðrar sölu veitinga að Hafnarstétt 21.

 

Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði frágangur húsnæðis til samræmis við kröfur eldvarnareftirlits, heilbrigðiseftirlits og vinnueftirlits.

 

17.

201007008 - Haukur Haraldsson f.h. Dvalaheimilis aldraðra Húsavík sækir um leyfi til að skipta um þakefni að Litlahvammi 1-9

Óskað er samþykkis skipulags- og byggingarnefndar fyrir því að fjarlægja torf af þökum allra húsa við Litla Hvamm á Húsavík og setja í staðinn litaða stálklæðningu.  Meðfylgjandi umsókn eru teikningar af breytingunum.

 

Soffía vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

18.

201007007 - Sigurjón Benediktsson f.h. óstofnaðs hlutafélags sækir um amsk. 50 ha iðnaðarlóð að Bakka

Óskað er eftir úthlutun a.m.k. 50 ha iðnaðarlóðar við Bakka norðan Húsavíkur til ræktunar ánamaðka til jarðbóta og sölu til veiðimanna.

 

Umrætt svæði er á gildandi aðalskipulagi skilgreint sem iðnaðarsvæði og ætlað undir mögulega orkufreka stóriðju skv. greinargerð skipulagsins.  Ekki verður séð að jafnvel stórfelld ánamaðkaræktun á 50 ha lands falli undir skilgreiningu sem orkufrek stóriðja.  Því telur meirihluti nefndarinnar úthlutun lands undir ánamaðkaræktun á skilgreindu iðnaðarsvæði við Bakka ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag og leggur því til við sveitarstjórn að umsókninni verði hafnað.  Hinsvegar telur meirihluti nefndarinnar líklegt að ánamaðkaræktun geti talist landbúnaður og telur mögulegt að útvega umsækjanda allt að 50 ha af landbúnaðarlandi við Saltvík verði þess óskað.

 

Hilmar óskar bókað:

"Fyrir hönd V-listans í Norðurþingi fagna ég uppkominni hugmynd óstofnaðs félags um atvinnustarfsemi á Bakka. Við í V-listanum styðjum heilshugar fram komna hugmynd um "eitthvað annað" í sveitarfélaginu. Ég bendi þó á þá staðreynd að það þurfi að auglýsa lóðina lausa til umsóknar áður en gengið verði til samninga við hið óstofnaða félag "Maðkur í mysunni ehf." þar um. Ég legg því til við sveitarstjórn Norðurþing að lóðin verði hér með auglýst laus til umsóknar."

 

19.

201007005 - Garðræktarfélag Reykhverfinga hf. sækir um byggingarleyfi fyrir sólstofu við gamla íbúðarhúsið að Hveravöllum

Óskað er eftir leyfi til að stækka sólstofu við gamla íbúðarhúsið að Hveravöllum í Reykjahverfi, skipta um glugga á eldri hluta hússins og endurnýja utanhússklæðningu með einangrun og múrkerfi.  Teikningar af breytingunum eru unnar af Per Langsöe Christensen arkitekt.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

20.

201007009 - Vigfús Sigurðsson og Ásdís Kjartansdóttir sækja um leyfi til að breyta glugga á bílskúr að Höfðabrekku 10

Óskað er eftir leyfi til að breyta útliti hússins að Höfðabrekku 10 skv. meðfylgjandi teikningu unninni af Vigfúsi Sigurðssyni byggingartæknifræðingi.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

21.

201007010 - Kristrún Ísaksdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús á lóð úr landi Undirveggjar

Óskað er eftir leyfi til byggingar 80,5 m² frístundahúss á lóð úr landi Undirveggjar.  Fyrir fundi liggur teikning unnin af Vigfúsi Sigurðssyni byggingartæknifræðingi.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um skil á afriti þinglýsts lóðarsamnings/afsali fyrir lóð.

 

22.

201007013 - Erna Björnsdóttir og Börkur Emilsson sækja um leyfi til að breyta efstu hæð hússins að Stóragarði 7

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir nýju þaki í breyttu formi á húseigninni að Stóragarði 7.  Hluti þakplötu verði nýttur sem útisvæði en þakrými að öðru leiti innréttað sem íbúðarrými.  Fyrir fundi liggur teikning unnin af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt.

 

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna erindið nágrönnum að Stóragarði 5 og 9 og Ketilsbraut 22 og 23.

 

23.

201007014 - Erna Björnsdóttir og Börkur Emilsson óska eftir samþykki nefndarinnar að eignarhlutur þeirra að Stóragarði 7 verði skráður sem ein eign

Óskað er samþykkis Norðurþings fyrir sameiningu tveggja eigna að Stóragarði 7.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

24.

201006069 - Guðrún Erla Jónsdóttir f.h. Bjarnabúðar ehf. sækir um leyfi til að sameina tvær íbúðir að Garðarsbraut 12

Óskað er eftir samþykki Norðurþings fyrir sameiningu tveggja eigna að Garðarsbraut 12.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

25.

201007018 - Jón Helgi Björnsson f.h. landeigenda Laxamýrar sækir um samþykki fyrir stofnun frístundalóðar nr. 7 í Laxárlundi

Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun frístundalóðar nr. 7 í Laxárlundi.

 

Skipulags- og byggingarnefnd telur umrædda lóð í samræmi við samþykkt deiliskipulag frá í mars 1984 og leggur því til við sveitarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning