Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Framkvæmda- og þjónustunefnd

Fundargerðir Framkvæmda- og þjónustunefndar - miðvikudagur 13.jan.10 19:29 - Lestrar 831

 

26. fundur

framkvæmda- og þjónustunefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

miðvikudaginn 13. janúar 2010 og hófst hann kl. 16:00

 

 

Fundinn sátu:

Aðalsteinn J. Halldórsson, formaður, Rúnar Þórarinsson, varaformaður, Kristinn Rúnar Tryggvason, aðalmaður, Guðmundur Magnússon, starfsmaður í stjórnsýslu, Tryggvi Jóhannsson framkv.- og þjónustufulltrúi, Trausti Aðalsteinsson, aðalmaður, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, varamaður, Sveinn Birgir Hreinsson, starfsmaður í stjórnsýslu.

 

Fundargerð ritaði:  Tryggvi Jóhannsson, Framkvæmda- og þjónustufulltrúi

 

 

Dagskrá:

 

1.

201001017 - Umferðarstofa, varðar umferðaröryggisáætlun

 

Bréf frá Umferðarstofu þar sem farið er fram á að fá tækifæri til að kynna aðferðarfræði að baki umferðaröryggisáætlun sem stjórnvöld hafa unnið að á undanförnum árum og sveitarfélög eru mikilvægur þátttakandi í. 

 

Framkvæmda- og þjónustunefnd býður fulltrúa Umferðarstofu velkomna til slíkrar kynningar.

 

 

 

2.

200912046 - Tré á Húsavík með sérstakt verndargildi

 

Fyrir fundinum lágu drög að samningi milli eigenda merkilegra trjáa og sveitarfélagsins, sem garðyrkjustjóri hefur gert samkvæmt samþykkt framkvæmda- og þjónustunefndar á síðasta fundi nefndarinnar.

 

Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir samninginn eins og hann liggur fyrir.

 

 

 

3.

200807074 - Fráveita - Húsavík

 

Fyrir fundinum lágu drög að samþykkt um fráveitur og meðhöndlun seyru í Norðurþingi.

 

Framkvæmda- og þjónustunefnd frestar afgreiðslu málsins og felur framkv. og þjónustufulltrúa að afla nánari upplýsinga.

 

 

 

4.

200911028 - Framkvæmda- og þjónustunefnd- Fjárhagsáætlun 2010

 

Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að hækka gjaldskrá þjónustumiðstöðva Norðurþings um 20%  en hún hefur verið óbreytt frá  febrúar 2008. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs til verðtryggingar hækkað um 26%.

 

 

 

5.

201001029 - Atvinnuátaksverkefni Skógræktarfélags Íslands 2010

 

Skógræktarfélag Íslands óskar eftir svari frá Norðurþingi um það hvort sveitarfélagið muni taka þátt í verkefnum á vegum þess og Skógræktarfélags Húsavíkur, sem fyrirhugað er að hrinda í framkvæmd yfir vor og sumartímann árið 2010.

Verkefnin eru hugsuð á svipaðan hátt og var í fyrra.

 

Framkvæmda- og þjónustunefnd tekur jákvætt í erindið en þó með fyrirvara um fjármögnun þess.

 

 

 

6.

200801077 - Staðardagskrá 21

 

Fyrirliggjandi drög að 1. útgáfu Staðardagskrá 21 voru yfirfarin á fundinum.

 

Málinu er vísað til þeirra nefnda sem málið varðar til yfirferðar.

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:25

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning